• FORSÍÐA
  • VEIÐI DVD
  • MEXÍKÓ
  • VEIÐILEYFI

MEXÍKÓ

Fluguveiði í sjó - Mexíkó

- Bonefish, Tarpon, Permit o.fl. -

 

Upplýsingar:

Lengd ferðar: 10 dagar frá því farið er frá Íslandi þar til komið er aftur tilbaka.

Innifalið: Allt innifalið nema áfengi, þjórfé og kvöldverður tvö kvöld í New York (sé sú leið valin). Flug, veiðileyfi, matur, gisting, leiðsögn - allur pakkinn innifalinn.

Verð á mann: Kr. 579.000.-

 

Ferðir í boði 2012

Mars - Laus pláss nánast hverja viku í mars

Apríl - 31. Mars - 11. Apríl, 11. - 17. Apríl

 

Um ferðina

Veiðimenn munu dvelja við veiðar í stórkostlegu umhverfi Ascension flóa innan Sian Ka'an þjóðgarðsins í litlu fiskiþorpi sem heitir Punta Allen. Svæðið er heimsþekkt fyrir frábæra fluguveiði í sjó og magn bonefish er ótrúlegt. Þarna eru fleiri tegundir eins og permit, barracuda, baby tarpon og snook svo einhverjar séu nefndar. Það er ótrúleg fjölbreytni í veiðinni þarna ásamt því að umhverfið á engan sinn líka.


Veiðimenn gista 200 metra frá stöndinni í Casa Veijo Chac. Þar eru fjögur tveggja manna herbergi með loftkælingu. Þar munu menn einnig borða og kokkurinn á staðnum er sérfræðingur í sjávarréttum. Allur matur er innifalinn en áfengir drykkir eru það ekki. Íslenskur fararstjóri er með í för í öllum ferðum.


Svona ferðir eru í boði á tímabilinu frá nóvember og fram í endaðann júní og er bæði lágmarks- og hámarksfjöldi í hverja ferð 6 manns. Þetta tryggir besta verðið.


Áhugasamir hafi samband við Stjána Ben hjá Iceland Angling Travel í síma 867 5200 eða með tölvupósti JLIB_HTML_CLOAKING fyrir frekari upplýsingar eða til að skrá sig á kynningu fyrir svona ferð.
Kynningarkvöld verða haldin á skrifstofu Iceland Angling Travel og farið verður yfir helstu atriði er varða ferðina, veiðibúnað og fleira.

 

Dæmi um ferðaáætlun

Dagur 1. Flogið er frá Keflavík með Icelandair til New York. Flugið sjálft tekur 6 klukkustundir.
Við komuna á JFK flugvöll bíður hópsins smárúta sem flytur hópinn á Hotel Holiday Inn sem staðsett er rétt hjá flugvellinum. Hótelið er þriggja stjörnu og bíður upp á mjög þægileg herbergi, internet tengingu og fleira. Þar mun hópurinn gista um nóttina en kvöld-verður það kvöld eða í fluginu er ekki innifalinn.


Dagur 2. Að loknum morgunverði, sem er innifalinn, er hópurinn aftur fluttur á JFK flugvöllinn til þess að taka flug til Cancun í Mexíkó. Flugið tekur rúmar 4 klukkustundir.
Við komuna til Cancun bíður hópsins rúta sem mun flytja hópinn um þriggja tíma leið suður til Ascension flóa þar sem dvalið verður við veiðar næstu vikuna. Við komuna fær hópurinn herbergin sín og svo er kvöldverður snæddur á staðnum og farið yfir veiðiplanið og helstu atriði kynnt.


Dagur 3 – 8. Veiðidagar. Tveir gestir á hverjum bát ásamt tveimur leiðsögumönnum sem þýðir einn leiðsögumaður á hvern veiðimann. Með þessu móti er hægt að skiptast á að kasta úr bátnum og vaða þar sem alltaf er leiðsögumaður með sem getur vaðið með mönnum. Að öðrum kosti geta báðir verið í bátnum og skipst á að kasta. Veiðimenn nýta þá auka par af augum leiðsögumanna.

Mjög stutt er frá "veiðihúsinu" og í bátana en misjafnt er hversu langan tíma það tekur að sigla á veiðislóð allt eftir því hvar veitt er á hverjum degi. Alltaf er komið í hús fyrir myrkur og dýrindis máltíðir bornar á borð á hverju kvöldi.


Dagur 9. Að morgni fer hópurinn aftur til Cancun og tekur flug aftur til New York. Á JFK bíður hópsins smárúta sem flytur aftur á Holiday Inn sem gist var á á leiðinni út. Hópurinn þarf ekki að vakna snemma morguninn eftir svo hægt er að sofa út en „check out“ er kl. 12:00


Dagur 10. Frídagur í New York. Flug til Íslands um kvöldið. Kvöldverður þennan dag er ekki innifalinn þar sem frjálst er að snæða kvöldverð hvar sem er. Lending á Íslandi eldsnemma að morgni daginn eftir.

 

Innifalið í verði:

Flug til New York og aftur heim. Flug báðar leiðir frá New York – Cancun. Gisting í 9 nætur, tvær nætur á hóteli í New York og sjö nætur í veiðihúsi í Punta Allen. Flutningur til og frá Punta Allen frá Cancun. Allur matur nema kvöldmatur þessi tvö kvöld í New York. Veiðileyfi og leiðsögumenn. Íslenskur fararstjóri.


Ekki innifalið í verði:

Þjórfé fyrir leiðsögumenn, áfengir drykkir sem og gosdrykkir, kvöldmatur tvö kvöld (New York).

Share
Twitter

Samstarfsaðilar

Online fly shop - fly fishing flies - salmon flies - trout flies

 

 

 

 

 

 

 

 Iceland Angling Travel - Íslenska - Barónsstígur 5, 101 Reykjavík - info@icelandangling.com - S:8675200 - www.icelandangling.com