VEIÐI DVD
Við höfum til sölu þrjár veiði DVD myndir úr seríunni The Source. Fyrsta myndin fjallar um fluguveiði á Tasmaníu, stærstu eyju Ástralíu, önnur myndin um fluguveiði á Nýja Sjálandi og sú þriðja og síðasta í röðinni um fluguveiðar á Íslandi.
Hægt er að panta myndirnar hjá okkur með því að senda okkur tölvupóst á JLIB_HTML_CLOAKING eða hringja í síma 8675200.
Hér að neðan sérðu upplýsingar um myndirnar ásamt verði. Rétt er að minnast á að myndirnar fást líka allar í betri veiðibúðum og The Source - Ísland fæst líka í Hagkaup og Pennanum - Eymundsson.
The Source - Ísland
Tekin upp á Íslandi árið 2009 og kom út fyrir jólin 2010. Er nú á sérstöku tilboðsverði hjá okkur. Myndinni er skipt í kafla og fær hver tegund ferskvatnsfiska á Íslandi sinn kafla. Ég fullyrði á þessi mynd á engan sinn líka og sýnir fluguveiði á Íslandi eins og þú hefur aldrei séð hana áður.
Verð kr. 2.990.-
Pöntun:
JLIB_HTML_CLOAKING
Sími: 867 5200
Stikla úr The Source - Ísland
The Source - New Zealand
Tekin upp á Nýja Sjálandi og er önnur myndin í seríunni. Réttara væri þó að segja að þessi væri númer þrjú því hín er tekin upp eftir að tökum á The Source - Ísland lauk. Eins og flestir vita er vetur á Nýja Sjálandi þegar það er sumar hér og öfugt og þess vegna fór tökuliðið beint til Nýja Sjálands að taka upp að loknum tökum hér á landi. Afraksturinn er ótrúlegur og myndatakan hreint út sagt mögnuð. Urriðaveiðin á Nýja Sjálandi er heimsfræg og hér sláumst við í för með nokkrum heimamönnum og gestum sem sýna okkur hvað Nýja Sjálandi hefur uppá að bjóða.
Verð: Kr. 2.990.-
Pöntun:
JLIB_HTML_CLOAKING
Sími: 867 5200
Stikla úr The Source - New Zealand
The Source - Tasmania
Tekin upp á Tasmaníu, stærstu eyju Ástralíu. Þarna er urriðinn ekki náttúruleg tegund en var færður frá Bretlandseyjum til Tasmaníu og honum sleppt í náttúrunni þar. Síðan þá hefur hann náð fótfestu og dafnað vel. Þessi mynd sýnir okkur urriðaveiði í Tasmaníu og hversu ótrúleg hún er orðin í dag. Frábær fluguveiðiskemmtun frá einum besta fluguveiði leikstjóra dagsins í dag.
Verð: 2.990.-
Pöntun:
JLIB_HTML_CLOAKING
Sími: 867 5200
Stikla úr The Source - Tasmania


